2020-10-23

Rýnt í faraldur COVID-19 á Íslandi

2020-10-23

Vísindafólk frá Háskóla Íslands, embætti landlæknis og Landspítala hafa unnið að gerð spálíkans um líklega þróun COVID-19 faraldursins á Íslandi að beiðni sóttvarnalæknis.

Embætti landlæknis og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra standa að baki covid.is. Þar er haldið utan um ýmsar upplýsingar varðandi faraldurinn og er heimasíðan uppfærð daglega. Á síðunni má finna tölulegar upplýsingar og gildandi takmarkanir.

Hér að neðan birtum við rýni um þróun smitstuðuls faraldursins (þ.e. áætlaður fjöldi einstaklinga sem sýktur einstaklingur utan sóttkvíar smitar að jafnaði)  ásamt mögulegri þróun greindra COVID-19 smita hér á landi næstu 10 daga.

Við sýnum líka mögulega þróun miðað við að núverandi aðgerðir hafa áhrif á smitstuðulinn og hann lækki í svipuðum takti og í fyrstu bylgju eftir samkomutakmörk við 20 manns. Gert er ráð fyrir að smitrakning haldi í við faraldurinn og að 50% smita greinist hjá þeim sem eru þegar í sóttkví.

 

Smitstuðull

Smitstuðullinn utan sóttkvíar á Íslandi er áætlaður 0,5 (spábil 0,03 – 1,5) sjá mynd 1. Við bendum á óvissuna í matinu og að spábilið nær upp fyrir 1. Möguleiki á veldisvísisvexti er enn fyrir hendi. Smitstuðullinn hefur samt farið lækkandi og árangur aðgerða er sýnilegur. Hafa verður samt í huga að nokkur fjöldi hefur líklega smitast síðustu daga og muni greinast á næstu dögum.

Hlutfall greininga í sóttkví hefur að jafnaði haldist yfir 50% undanfarið. Smitstuðullinn innan sóttkvíar á Íslandi er áætlaður 0,6 (spábil 0,3-0,9). Hér er spábilið fyrir neðan 1. Það er mikilvægt að hlutfall greininga í sóttkví haldist hátt og gegnir öflug smitrakning lykilhlutverki í því.

Það er einnig mikilvægt að samfélagið allt fylgi tilmælum um sóttvarnir þannig að fjöldi greindra einstaklinga utan sóttkvíar lækki. Þannig gætum við séð smitstuðullinn lækka enn á næstu vikum.

 

Hvar er mesta hættan á smiti?

Skýrt yfirlit (https://www.idsociety.org/globalassets/idsa/public-health/covid-19/activity-risk.pdf) um hvar mestu smithætturnar liggja má finna frá smitsjúksdómasamtökum Bandaríkjanna. Mesta hættan er t.d. á krám og líkamsræktarstöðvum. Greining á smitrakningargögnunum á Íslandi benda til þess sama (https://www.ruv.is/frett/2020/10/22/88-smit-a-likamsraektarstodvum-i-thridju-bylgjunni).

 

Á hvaða leið vorum við?

Spáin um þróun fyrstu bylgju varð stöðug um fjórum vikum frá upphafi faraldurs. Segja má að um 1. apríl hafi smitstuðullinn verið að nálgast einn. Eftir það fylgdi bylgjan kúrfu. Hliðstætt gerðist í bylgju 2. Um miðjan ágúst var smitstuðullinn kominn að einum, með fráviki í kringum hópsmit 20. ágúst og hélst rúmlega 1 inní miðjan september. Smitstuðullinn hefði samt þurft að fara undir einn til að ná faraldrinum alveg niður eins og í fyrstu bylgju. Því miður gerðist það ekki.

Með auknum umsvifum í þjóðfélaginu í september náði veiran sér svo á flug með stóru hópsmiti á höfuðborgarsvæðinu í kringum 15. Það leit út fyrir að tök væru að nást en annað hópsmit í byrjun október setti bókstaflega strik í reikninginn (https://www.ruv.is/frett/2020/10/14/tvaer-storar-hopsykingar-i-thridju-bylgju-faraldursins).

Á neðangreindri mynd má sjá hvernig hópsmitið sveigði faraldurinn frá áætlaðri kúrfu.

Nú þegar stjórn hefur náðst mun smittíðnin aftur færast að spánni. Gera má ráð fyrir að það taki til enda nóvember (6 vikur) að ná smitum í lágar tölur.

 

Hvert stefnum við?

Hér sýnum við sviðsmynd fyrir mögulega þróun faraldursins miðað við ákveðnar forsendur um hvernig smitstuðullinn mun þróast áfram. Gert er ráð fyrir að aðgerðir hafa áhrif á smitstuðulinn í svipuðum takti og í fyrstu bylgju eftir samkomutakmörk við 20 manns. Gert er ráð fyrir að smitrakning haldi í við faraldurinn og 50% smita greinist hjá þeim sem eru þegar í sóttkví. Þó óvissan sé í matinu, bendir þessi sviðsmynd til þess að smitum fækki heldur á næstu 10 dögum.

Niðurstaða

Sviðsmyndin að ofan endurspeglar hvert stefnir þegar smitstuðullinn er undir einum. En óvissa er samt enn til staðar. Með öðrum orðum, efri mörk spábilsins ná enn yfir 1. Það er grundvallaratriði að lækka smitstuðulinn marktækt undir 1 og halda honum þannig. Ef smitstuðull fer yfir 1, er til staðar ástand þar sem smit  geta auðveldlega blossað upp og þróað faraldurinn í veldisvísisvöxt.

Það sem hefur áhrif á smitstuðulinn er okkar hegðun. Munum að þeir sem smitast byrja að smita áður en einkenni koma fram og þess vegna getur hver sem lent í því að smita aðra (https://www.visindavefur.is/svar.php?id=80220#).

En ef þátttaka í aðgerðum er góð, fólk heldur fjarlægð, vinnur heima (þeir sem geta) og passar upp á smitvarnir þá tekst þetta. Jafnvel fyrir fyrsta sunnudag í aðventu.