2020-04-14 (ISL)

 

2020-04-14

 

Samantekt

Til að vera viðbúin möguleikanum á frekari hliðrun aldursdreifingar fylgir önnur forspá þar sem gert er ráð fyrir að aldursdreifingin verði óhagstæðari, en hana má lesa neðar í skýrslunni.

 

Helstu niðurstöður spálíkansins með gögnum til og með 13. apríl eru eftirfarandi:

  • Gert er ráð fyrir því að á meðan þessi bylgja faraldursins gengur yfir muni rúmlega 1700 manns á Íslandi vera greind með COVID-19, en talan gæti náð nær 2100 manns skv. svartsýnni spá.
  • Gert er ráð fyrir að fjöldi greindra einstaklinga með virkan sjúkdóm nái hámarki í fyrstu viku apríl og verði sennilega um 1300 manns, en gæti viku seinna náð 1600 manns skv. svartsýnni spá.
  • Gert er ráð fyrir að á meðan að þessi bylgja faraldursins gengur yfir muni 110 manns þarfnast innlagnar á sjúkrahúsi, en gæti náð hátt í 150 manns.
  • Mesta álag á heilbrigðisþjónustu vegna sjúkrahúsinnlagna verður fyrir miðjan apríl en þá er gert ráð fyrir að um það bil 60 einstaklingar geti verið inniliggjandi á sama tíma, en svartsýnni spá er 90 einstaklingar.
  • Gert er ráð fyrir því að á tíma faraldursins muni um 24 einstaklingar veikjast alvarlega, þ.e. þurfa innlögn á gjörgæslu, á tímabilinu en svartsýnni spá er 35 einstaklingar.
  • Mesta álag á gjörgæsludeildir gæti orðið í annarri viku apríl, en þá er búist við því að 10 manns liggi þar inni á sama tíma, en samkvæmt svartsýnni spá gætu það verið 18 manns.
  • Smávægileg hliðrun aldursdreifingar í átt að fleiri greindum smitum meðal einstaklinga yfir sextugt myndi auka álag á heilbrigðisþjónustu talsvert.

Greiningarvinnan mun halda áfram og spáin verður uppfært reglulega með nýjum upplýsingum. Hafa ber í huga að vegna fámennis geta tölurnar um fjölda greindra tilfella breyst mikið frá degi til dags sem hefur áhrif á spána, en hún verður stöðugri eftir því sem á líður.

 

Aðferðir og forsendur spálíkans

  • Mikilvægt er að hafa í huga hvað verið er að tala um þegar talað er um forspá eða spálíkan. Forspáin er reiknuð út frá spálíkaninu, en spálíkan er reikniformúla sem beitt er á fyrirliggjandi gögn. Spálíkanið (formúlan) breytist ekki, en forspáin breytist þegar ný gögn berast.
  • Við notuðum logistískt vaxtarlíkan með neikvæða tvíkostadreifingu á daglegan fjölda nýgreindra smita á Íslandi til að gera forspá um miðgildi (líklegri spá) og 97,5% efri mörk (svartsýn spá) um fjölda greindra COVID-19 tilfella á Íslandi og virkra greindra tilfella (þar sem gert er ráð fyrir 21 veikindadegi) á næstu vikum.
  • Í samræmi við þekkingu á faraldsfræði smitsjúkdóma, þá gerir spálíkanið ráð fyrir að það hægi á upphaflegum veldisvexti greindra tilfella þar til að þessi bylgja faraldursins nær hámarki, nýjum smitum fer fækkandi og fjölda einstaklinga með virkan sjúkdóm þar á eftir.
  • Reikniaðferðin sem notuð er til að meta lögun vaxtarferilsins á Íslandi tekur mið af upplýsingum um COVID-19 faraldursferla í öðrum löndum (sjá viðauka) til að áætla mögulega lögun ferilsins á Ísland. Þrátt fyrir að upplýsingar frá öðrum löndum séu notaðar þá vega gögnin um Ísland mest í forspánni.
  • Þar sem allir smitaðir einstaklingar á Íslandi eru skjólstæðingar íslensks heilbrigðiskerfis, þá byggir spáin á heildarfjölda smitaðra einstaklinga á Íslandi óháð uppruna smita, hvort einstaklingar greinist í sóttkví eða ekki, gegnum skimun Heilsugæslunnar eða ÍE. Hafa skal í huga að smitaðir einstaklingar í sóttkví gætu mögulega bætt minna við veldisvöxtinn en aðrir einstaklingar.
  • Við notuðum fyrirliggjandi aldursdreifingu smita á Íslandi til að áætla skiptingu framtíðartilfella í aldurshópa. Síðan notuðum við upplýsingar frá Ferguson og félögum hjá Imperial College (Tafla 1) um aldurstengd hlutföll spítalainnlagna í forspá okkar um fjölda sjúklinga hérlendis sem gætu lagst inn á spítala og/eða gjörgæslu.
    • Ýmsar ástæður eru fyrir því að slík aldurstengd áhætta skyldi vera önnur á Íslandi en í Hubei.
    • T.d. felst í þessu óbein forsenda um að dreifing áhættuþátta fyrir alvarlegum afleiðingum sjúkdómsins sé svipuð.
    • Auk þess er gert ráð fyrir því að ákvarðanir um það hvenær tímabært sé að leggja einstaklinga inn á spítala eða gjörgæslu séu eins.
    • Misræmi milli spár og fjölda á gjörgæslu gæti bent til þess að viðbrögð í upphafi faraldurs séu önnur hér en í Hubei.
    • Hins vegar er þessi forsenda nauðsynleg í upphafi faraldurs meðan ekki eru næg gögn um sjúkrahús- og gjörgæslulegur hér á landi.
  • Hafa ber í huga að aldursdreifing smitaðra einstaklinga á Íslandi er hagstæð enn sem komið er. Ef fjöldi smita eykst meðal aldraðra einstaklinga mun það hafa veruleg áhrif á spálíkanið í átt að auknu álagi á heilbrigðiskerfið.
  • Allan kóða á finna á eftirfarandi vefsíðu.
  • Tæknilega skýrslu um aðferð við þróun líkans má finna hér.
  • Mælaborð sem heldur utan um þróun COVID-19 á Íslandi og annars staðar má nálgast á vef Háskóla Íslands hér.

 

Niðurstöður

Greind smit

Uppsöfnuð greind smit

Virk greind smit á hverjum degi

Ný greind smit á hverjum degi

Sjúkrahúslegur

Uppsafnaðar sjúkrahúslegur

Virkar sjúkrahúslegur á hverjum degi

 

Gjörgæsla

Uppsafnaðar gjörgæslulegur

Virkar gjörgæslulegur á hverjum degi

 

Aldursskipt

Greind smit

Uppsöfnuð

 

Virk

 

Sjúkrahúslegur

Uppsafnaðar

 

Virkar

 

Gjörgæslulegur

Uppsafnaðar

 

Virkar

 

Niðurstöður með annarri aldursdreifingu

Önnur aldursdreifing

Eftirfarandi er hermun á þróun miðað við að smit leggist hlutfallslega meira á eldri aldurshópa en nú gerir.

Sjúkrahúslegur

Uppsafnaðar sjúkrahúslegur

Virkar sjúkrahúslegur á hverjum degi

Gjörgæsla

Uppsafnaðar gjörgæslulegur

Virkar gjörgæslulegur á hverjum degi

 

Aldursskipt

Greind smit

Uppsöfnuð

Virk

 

Sjúkrahúslegur

Uppsafnaðar

Virkar

 

Gjörgæslulegur

Uppsafnaðar

Virkar

 

Viðauki

Upplýsingar um gögn í líkanasmíð
Tíðni
Land Fyrsta athugun Fjöldi daga Upphaf
Albania 2020-04-04 11 0.1055220 0.1621012
Armenia 2020-03-27 19 0.1112339 0.3512828
Australia 2020-03-26 20 0.1110573 0.2525870
Austria 2020-03-17 29 0.1134549 1.5681563
Bahrain 2020-03-14 32 0.1279573 0.8292854
Barbados 2020-03-30 16 0.1149726 0.2508492
Belgium 2020-03-18 28 0.1077186 2.6508476
Bosnia And Herzegovina 2020-03-31 15 0.1069373 0.3114208
Canada 2020-03-27 19 0.1074014 0.6859739
Chile 2020-03-29 17 0.1007280 0.3970549
Croatia 2020-03-26 20 0.1012032 0.3994863
Cyprus 2020-03-25 21 0.1051247 0.5612305
Denmark 2020-03-13 33 0.1171196 1.0946181
Djibouti 2020-04-08 7 0.1242861 0.3060931
Dominican Republic 2020-04-01 14 0.1032689 0.2949076
Ecuador 2020-03-29 17 0.1056196 0.4333571
Estonia 2020-03-16 30 0.1289935 1.0047916
Finland 2020-03-23 23 0.1131566 0.5538528
France 2020-03-17 29 0.1018429 1.5058561
French Polynesia 2020-03-27 19 0.1074164 0.1969300
Germany 2020-03-20 26 0.1692828 1.4978739
Greece 2020-03-29 17 0.1013037 0.2048035
Iceland 2020-03-05 39 0.1091346 5.0467361
Iran 2020-03-12 34 0.1085463 0.8840857
Ireland 2020-03-20 26 0.1140810 2.1806474
Israel 2020-03-22 24 0.1036461 1.3599586
Italy 2020-03-09 37 0.1218000 2.6344476
Kuwait 2020-04-05 10 0.1138556 0.3090027
Latvia 2020-03-25 21 0.1033175 0.3435177
Lithuania 2020-03-27 19 0.1083480 0.3877336
Luxembourg 2020-03-16 30 0.1250550 5.3465080
Malaysia 2020-04-04 11 0.1043200 0.1507679
Malta 2020-03-19 27 0.1089988 0.8719900
Mauritius 2020-03-31 15 0.1067935 0.2703210
Moldova 2020-04-02 13 0.1046185 0.4234204
Montenegro 2020-03-27 19 0.1066901 0.4363148
Netherlands 2020-03-19 27 0.1199617 1.5529507
New Zealand 2020-03-30 16 0.1154072 0.2241242
North Macedonia 2020-03-28 18 0.1051137 0.4098953
Norway 2020-03-13 33 0.1154520 1.2062042
Panama 2020-03-25 21 0.1043227 0.8176263
Poland 2020-04-06 9 0.1082671 0.1830142
Portugal 2020-03-22 24 0.1251688 1.6559447
Puerto Rico 2020-04-03 12 0.1077245 0.3078331
Qatar 2020-03-14 32 0.1129917 1.1408628
Romania 2020-03-31 15 0.1008027 0.3425330
Serbia 2020-04-01 14 0.1025964 0.4138056
Singapore 2020-03-27 19 0.1023373 0.5027275
Slovakia 2020-04-08 7 0.1064685 0.1409196
Slovenia 2020-03-16 30 0.1053566 0.5830696
Spain 2020-03-15 31 0.1230936 3.6266087
Sweden 2020-03-16 30 0.1028259 1.0908317
Switzerland 2020-03-14 32 0.1304798 2.9679801
Turkey 2020-03-30 16 0.1104764 0.7317426
United Arab Emirates 2020-04-03 12 0.1048050 0.4627180
United Kingdom 2020-03-25 21 0.1196058 1.3123171
United States 2020-03-23 23 0.1069880 1.7704531
Uruguay 2020-04-03 12 0.1065940 0.1505026