2020-03-23
Samantekt
Spáin hefur breyst verulega frá því 19. mars þar sem faraldurinn er í veldisvexti og frá þeim tíma hefur fjöldi tilfella allt að því tvöfaldast.
Helstu niðurstöður spálíkansins með gögnum til og með 22. mars eru eftirfarandi:
- Búist er við því að fyrir lok apríl 2020 hafi líklega um 2500 manns á Íslandi verið greindir með COVID-19, en talan gæti náð tæplega 6000 manns skv. svartsýnustu spá.
- Búist er við að fjöldi greindra einstaklinga með virkan sjúkdóm nái hámarki á fyrstu vikum apríl, og verði sennilega nær 2000 manns, en gæti náð tæplega 4500 manns skv. svartsýnustu spá.
- Búist er við að á meðan að faraldurinn gengur yfir muni um 170 manns þarfnast aðhlynningar í innlögn á sjúkrahúsi, en gæti náð um 400 manns skv. svartsýnustu spá.
- Mesta álag á heilbrigðisþjónustu vegna sjúkrahúsinnlagna verður um miðjan apríl en þá er gert ráð fyrir að um 90 einstaklingar geti verið inniliggjandi, en svartsýnasta spá er 200 einstaklingar.
- Búist er við því að um 20 einstaklingar veikist alvarlega, þ.e. þarfnist gjörgæslu, á tímabilinu en svartsýnasta spá er á bilinu 45 – 50 einstaklingar.
- Mesta álag á gjörgæsludeildir gæti verið í annarri viku apríl, en þá er búist við því að 7 manns liggi þar inni á sama tíma, en samkvæmt svartsýnustu spá gætu það verið 18 manns.
Greiningarvinnan mun halda áfram og spálíkanið verður uppfært reglulega með nýjum upplýsingum. Hafa ber í huga að vegna fámennis geta tölurnar um fjölda greindra tilfella breyst mikið frá degi til dags sem hefur áhrif á niðurstöður spálíkansins. Líkanið verður þó stöðugra eftir því sem á líður.
Aðferðir og forsendur spálíkans
- Við notuðum logistískt vaxtarlíkan með Poisson dreifingu á fjölda þegar greindra smita á Íslandi til að gera forspá um miðgildi (líklegustu spá) og 97,5% efri mörk (svartsýnustu spá) um uppsafnaðan fjölda greindra COVID-19 tilfella á Íslandi og virkra greindra tilfella (þar sem gert er ráð fyrir 21 veikindadegi) á næstu vikum.
- Í samræmi við þekkingu á faraldsfræði smitsjúkdóma, þá gerir spálíkanið ráð fyrir að það hægi á núverandi veldisvexti greindra tilfella þar til að hann stöðvist á einhverjum tímapunkti, þar sem faraldurinn nær hámarki og virkum smitum fækkar þar á eftir.
- Reikniaðferðin sem notuð er til að meta lögun vaxtarferilsins á Íslandi tekur mið af upplýsingum um COVID-19 faraldursferla í öðrum löndum (sjá viðauka) til að áætla mögulega lögun ferlisins á Ísland. Lönd sem eru komin lengra í ferlinum, t.d. Suður-Kórea, vega meira en þau sem styttra eru komin.
- Þar sem allir smitaðir einstaklingar á Íslandi eru skjólstæðingar íslensks heilbrigðiskerfis, þá byggir spáin á heildarfjölda smitaðra einstaklinga á Íslandi óháð uppruna smita, hvort einstaklingar greinist í sóttkví eða ekki, gegnum skimun Heilsugæslunnar eða ÍE. Hafa skal í huga að smitaðir einstaklingar í sóttkví gætu mögulega bætt minna við veldisvöxtinn en aðrir einstaklingar.
- Við notuðum fyrirliggjandi aldursdreifingu smita á Íslandi til að áætla skiptingu framtíðartilfella í aldurshópa. Síðan notuðum við upplýsingar frá Ferguson og félögum hjá Imperial College (Tafla 1) um aldurstengd hlutföll spítalainnlagna í forspá okkar um fjölda sjúklinga hérlendis sem gætu lagst inn á spítala og/eða gjörgæslu.
- Hafa ber í huga að aldursdreifing smitaðra einstaklinga á Íslandi er hagstæð enn sem komið er. Ef fjöldi smita eykst meðal aldraðra einstaklinga mun það hafa veruleg áhrif á spálíkanið í átt að auknu álagi á heilbrigðiskerfið.
- Allan kóða má finna á eftirfarandi vefsíðu
Niðurstöður
Greind smit
Virk greind smit á hverjum degi
Sjúkrahúslegur
Uppsafnaðar sjúkrahúslegur
Virkar sjúkrahúslegur á hverjum degi
Gjörgæsla
Uppsafnaðar gjörgæslulegur
Virkar gjörgæslulegur á hverjum degi
Aldursskipt
Greind smit
Uppsöfnuð
Virk
Sjúkrahúslegur
Uppsafnaðar
Virkar
Gjörgæslulegur
Uppsafnaðar
Virkar
Viðauki
Upplýsingar um gögn í líkanasmíð
Land | Fyrsta athugun | Fjöldi daga | Upphaf | Nú |
---|---|---|---|---|
Austria | 2020-03-13 | 10 | 0.0403122 | 0.3376846 |
Bahrain | 2020-03-09 | 14 | 0.0481363 | 0.1864521 |
Belgium | 2020-03-14 | 9 | 0.0484430 | 0.2439483 |
Brunei | 2020-03-13 | 10 | 0.0576987 | 0.1915598 |
Denmark | 2020-03-11 | 12 | 0.0457390 | 0.2297347 |
Estonia | 2020-03-14 | 9 | 0.0595935 | 0.2308305 |
France | 2020-03-13 | 10 | 0.0441580 | 0.2220031 |
Germany | 2020-03-15 | 8 | 0.0454398 | 0.2569895 |
Iceland | 2020-03-03 | 19 | 0.0501429 | 1.6753630 |
Iran | 2020-03-06 | 17 | 0.0423692 | 0.2485711 |
Italy | 2020-03-04 | 19 | 0.0413212 | 0.8848544 |
Liechtenstein | 2020-03-12 | 11 | 0.0789079 | 0.9468950 |
Luxembourg | 2020-03-13 | 9 | 0.0422264 | 1.0881410 |
Malta | 2020-03-15 | 8 | 0.0408745 | 0.1657689 |
Monaco | 2020-03-15 | 8 | 0.0769941 | 0.4619649 |
Netherlands | 2020-03-14 | 9 | 0.0470254 | 0.2123748 |
Norway | 2020-03-11 | 12 | 0.0514979 | 0.3580686 |
Qatar | 2020-03-12 | 10 | 0.0925119 | 0.1698406 |
San Marino | 2020-03-02 | 20 | 0.2362670 | 4.4595393 |
Slovenia | 2020-03-13 | 10 | 0.0461837 | 0.1842538 |
South Korea | 2020-02-29 | 23 | 0.0572178 | 0.1736837 |
Spain | 2020-03-12 | 11 | 0.0457884 | 0.5333273 |
Sweden | 2020-03-12 | 11 | 0.0460325 | 0.1739671 |
Switzerland | 2020-03-10 | 13 | 0.0435321 | 0.7073381 |
2020-3-19
Samantekt:
- Sóttvarnarlæknir kallaði saman vísindamenn frá Háskóla Íslands, Embætti Landlæknis, og Landspítala til að gera spálíkan um líklega þróun COVID-19 faraldursins á Íslandi sem gæti nýst við ákvarðanatöku um viðbrögð og skipulag heilbrigðisþjónustu.
- Hópurinn kynnti fyrstu niðurstöður úr lógistísku spálíkani á upplýsingafundi með Almannavörnum 18/3 2020
- Helstu niðurstöður spálíkansins eru eftirfarandi:
- Búist er við því að fyrir lok maí 2020 hafi líklega um 1000 manns á Íslandi verið greindir með COVID-19, en talan gæti náð rúmlega 2000 manns skv. svartsýnustu spá.
- Búist er við að fjöldi greindra einstaklinga með virkan sjúkdóm nái hámarki á fyrstu vikum apríl, og verði sennilega um 600 manns, en gæti náð 1200 manns skv. svartsýnustu spá.
- Búist er við að á meðan að faraldurinn gengur yfir muni um 60 manns þarfnast aðhlynningar í innlögn á sjúkrahúsi, en gæti náð rúmlega 200 manns skv. svartsýnustu spá.
- Mesta álag á heilbrigðisþjónustu vegna sjúkrahúsinnlagna verður um eða eftir miðjan apríl en þá er gert ráð fyrir að um 40 einstaklingar geti verið inniliggjandi, en svartsýnasta spá er 120 einstaklingar.
- Búist er við því að um 11 einstaklingar veikist alvarlega, þ.e. þarfnist gjörgæslu, á tímabilinu en svartsýnasta spá er 50 einstaklingar.
- Greiningarvinnan mun halda áfram og spálíkanið verður uppfært reglulega með nýjum upplýsingum. Hafa ber í huga að vegna fámennis geta tölurnar um fjölda greindra tilfella breyst mikið frá degi til dags sem hefur áhrif á niðurstöður spálíkansins. Líkanið verður þó stöðugra eftir því sem á líður.
Aðferð
Forspá uppsafnaðra tilfella
Virk smit
Gerum ráð fyrir því að einstaklingur sem smitast verði frískur þremur vikun seinna. Athugum svo hvernig sú forsenda passar við gögn um virk smit í Hubei.
Hermun
Gagnataflan að neðan er sett saman með
% Tilfella
: aldursdreifing smita skv covid.is. Bæti við einu tilfelli í alla aldurshópa til að leyfa smit í 80+ og jafna aðeins út drefinguna.
% Spítali
og % Alvarlegt
: table 1 héðan
Íslenskar upplýsingar | Úr rannsóknum | |||
---|---|---|---|---|
Aldur | Tilfelli á Íslandi | % Tilfella | % Spítali | % Alvarlegt |
[0 – 9] | 3 | 0.88% | 0.10% | 5% |
[10 – 19] | 21 | 6.19% | 0.30% | 5% |
[20 – 29] | 46 | 13.57% | 1.20% | 5% |
[30 – 39] | 56 | 16.52% | 3.20% | 5% |
[40 – 49] | 85 | 25.07% | 4.90% | 6% |
[50 – 59] | 71 | 20.94% | 10.20% | 12% |
[60 – 69] | 48 | 14.16% | 16.60% | 27% |
[70 – 79] | 8 | 2.36% | 24.30% | 43% |
80+ | 1 | 0.29% | 27.30% | 71% |
Note: | ||||
Einu tilviki bætt við alla aldurshópa til að jafna aðeins út dreifingu og leyfa smit í 80+ |
Skref í hermun
- Met logistic growth líkan og fæ forspá úr því, mean og 97.5% predictive upper limit
- Nota fyrirliggjandi aldursdreifingu smita og forspár til að herma framtíðartilfelli með multinomial (bætti einu tilviki við alla aldurshópa til að fá ekki 0 í 80+)
- Nota table 1 héðan til að herma sjúkahúslegur út frá skiptingu tilfella
- Nota sömu töflu til að spá fyrir um bráð tilfelli meðal ofangreinda sjúkrahúsinnlagna
- Sæki miðgildi og valið quantile úr öllum ofangreindum hermunum og skila í gagnatöflu.
Skipta í aldurshópa
Herma fjölda innlagna
Aldur | Smit |
---|---|
[0 – 9] | 4 |
[10 – 19] | 40 |
[20 – 29] | 66 |
[30 – 39] | 96 |
[40 – 49] | 155 |
[50 – 59] | 138 |
[60 – 69] | 86 |
[70 – 79] | 13 |
80+ | 2 |
Forsendur
- Smitaður einstaklingur er ekki lengur smitaður eftir 3 vikur
- Einstaklingur á sjúkrahúsi útskrifast eftir 2 vikur
- Einstaklingur á gjörgæslu fer þaðan eftir 10 daga
- Aldursdreifing smitaðra á Íslandi helst sú sama
- Aldursskipt tíðni sjúkrahúsinnlagna og gjörgæslulega verður svipuð hérs og í Hubei
Kóði
Allan kóða á finna á eftirfarandi vefsíðu.