Spálíkan fyrir fjölda tilfella og álag á heilbrigðisþjónustu
2020-04-06
Samantekt
Til að vera viðbúin möguleikanum á frekari hliðrun aldursdreifingar fylgir önnur forspá þar sem gert er ráð fyrir að aldursdreifingin verði óhagstæðari, en hana má lesa neðar í skýrslunni.
Helstu niðurstöður spálíkansins með gögnum til og með 5. apríl eru eftirfarandi:
- Gert er ráð fyrir því að á meðan þessi bylgja faraldursins gengur yfir muni rúmlega 2100 manns á Íslandi vera greind með COVID-19, en talan gæti náð nær 2600 manns skv. svartsýnni spá.
- Gert er ráð fyrir að fjöldi greindra einstaklinga með virkan sjúkdóm nái hámarki í fyrstu viku apríl og verði sennilega um 1400 manns, en gæti viku seinna náð 1700 manns skv. svartsýnni spá.
- Gert er ráð fyrir að á meðan að þessi bylgja faraldursins gengur yfir muni 140 manns þarfnast innlagnar á sjúkrahúsi, en gæti náð hátt í 170 manns.
- Mesta álag á heilbrigðisþjónustu vegna sjúkrahúsinnlagna verður fyrir miðjan apríl en þá er gert ráð fyrir að um það bil 70 einstaklingar geti verið inniliggjandi á sama tíma, en svartsýnni spá er 90 einstaklingar.
- Gert er ráð fyrir því að á tíma faraldursins muni um 28 einstaklingar veikjast alvarlega, þ.e. þurfa innlögn á gjörgæslu, á tímabilinu en svartsýnni spá er 41 einstaklingar.
- Mesta álag á gjörgæsludeildir gæti orðið í annarri viku apríl, en þá er búist við því að 11 manns liggi þar inni á sama tíma, en samkvæmt svartsýnni spá gætu það verið 19 manns.
- Smávægileg hliðrun aldursdreifingar í átt að fleiri greindum smitum meðal einstaklinga yfir sextugt myndi auka álag á heilbrigðisþjónustu talsvert.
- Greiningarvinnan mun halda áfram og spáin verður uppfært reglulega með nýjum upplýsingum. Hafa ber í huga að vegna fámennis geta tölurnar um fjölda greindra tilfella breyst mikið frá degi til dags sem hefur áhrif á spána, en hún verður stöðugri eftir því sem á líður.
Aðferðir og forsendur spálíkans
- Mikilvægt er að hafa í huga hvað verið er að tala um þegar talað er um forspá eða spálíkan. Forspáin er reiknuð út frá spálíkaninu, en spálíkan er reikniformúla sem beitt er á fyrirliggjandi gögn. Spálíkanið (formúlan) breytist ekki, en forspáin breytist þegar ný gögn berast.
- Við notuðum logistískt vaxtarlíkan með neikvæða tvíkostadreifingu á daglegan fjölda nýgreindra smita á Íslandi til að gera forspá um miðgildi (líklegri spá) og 97,5% efri mörk (svartsýn spá) um fjölda greindra COVID-19 tilfella á Íslandi og virkra greindra tilfella (þar sem gert er ráð fyrir 21 veikindadegi) á næstu vikum.
- Í samræmi við þekkingu á faraldsfræði smitsjúkdóma, þá gerir spálíkanið ráð fyrir að það hægi á upphaflegum veldisvexti greindra tilfella þar til að þessi bylgja faraldursins nær hámarki, nýjum smitum fer fækkandi og fjölda einstaklinga með virkan sjúkdóm þar á eftir.
- Reikniaðferðin sem notuð er til að meta lögun vaxtarferilsins á Íslandi tekur mið af upplýsingum um COVID-19 faraldursferla í öðrum löndum (sjá viðauka) til að áætla mögulega lögun ferilsins á Ísland. Þrátt fyrir að upplýsingar frá öðrum löndum séu notaðar þá vega gögnin um Ísland mest í forspánni.
- Þar sem allir smitaðir einstaklingar á Íslandi eru skjólstæðingar íslensks heilbrigðiskerfis, þá byggir spáin á heildarfjölda smitaðra einstaklinga á Íslandi óháð uppruna smita, hvort einstaklingar greinist í sóttkví eða ekki, gegnum skimun Heilsugæslunnar eða ÍE. Hafa skal í huga að smitaðir einstaklingar í sóttkví gætu mögulega bætt minna við veldisvöxtinn en aðrir einstaklingar.
- Við notuðum fyrirliggjandi aldursdreifingu smita á Íslandi til að áætla skiptingu framtíðartilfella í aldurshópa. Síðan notuðum við upplýsingar frá Ferguson og félögum hjá Imperial College (Tafla 1) um aldurstengd hlutföll spítalainnlagna í forspá okkar um fjölda sjúklinga hérlendis sem gætu lagst inn á spítala og/eða gjörgæslu.
- Ýmsar ástæður eru fyrir því að slík aldurstengd áhætta skyldi vera önnur á Íslandi en í Hubei.
- T.d. felst í þessu óbein forsenda um að dreifing áhættuþátta fyrir alvarlegum afleiðingum sjúkdómsins sé svipuð.
- Auk þess er gert ráð fyrir því að ákvarðanir um það hvenær tímabært sé að leggja einstaklinga inn á spítala eða gjörgæslu séu eins.
- Misræmi milli spár og fjölda á gjörgæslu gæti bent til þess að viðbrögð í upphafi faraldurs séu önnur hér en í Hubei.
- Hins vegar er þessi forsenda nauðsynleg í upphafi faraldurs meðan ekki eru næg gögn um sjúkrahús- og gjörgæslulegur hér á landi.
- Hafa ber í huga að aldursdreifing smitaðra einstaklinga á Íslandi er hagstæð enn sem komið er. Ef fjöldi smita eykst meðal aldraðra einstaklinga mun það hafa veruleg áhrif á spálíkanið í átt að auknu álagi á heilbrigðiskerfið.
- Allan kóða á finna á eftirfarandi vefsíðu.
- Tæknilega skýrslu um aðferð við þróun líkans má finna hér.
- Mælaborð sem heldur utan um þróun COVID-19 á Íslandi og annars staðar má nálgast á vef Háskóla Íslands hér.
Niðurstöður
Greind smit
Uppsöfnuð greind smit
Virk greind smit á hverjum degi
Ný greind smit á hverjum degi
Sjúkrahúslegur
Uppsafnaðar sjúkrahúslegur
Virkar sjúkrahúslegur á hverjum degi
Gjörgæsla
Uppsafnaðar gjörgæslulegur
Virkar gjörgæslulegur á hverjum degi
Aldursskipt
Greind smit
Uppsöfnuð
Virk
Sjúkrahúslegur
Uppsafnaðar
Virkar
Gjörgæslulegur
Uppsafnaðar
Virkar
Niðurstöður með annarri aldursdreifingu
Önnur aldursdreifing
Eftirfarandi er hermun á þróun miðað við að smit leggist hlutfallslega meira á eldri aldurshópa en nú gerir.
Sjúkrahúslegur
Uppsafnaðar sjúkrahúslegur
Virkar sjúkrahúslegur á hverjum degi
Gjörgæsla
Uppsafnaðar gjörgæslulegur
Virkar gjörgæslulegur á hverjum degi
Aldursskipt
Greind smit
Uppsöfnuð
Virk
Sjúkrahúslegur
Uppsafnaðar
Virkar
Gjörgæslulegur
Uppsafnaðar
Virkar
Viðauki
Upplýsingar um gögn í líkanasmíð
Tíðni
|
||||
---|---|---|---|---|
Land | Fyrsta athugun | Fjöldi daga | Upphaf | Nú |
Armenia | 2020-03-27 | 11 | 0.1112339 | 0.2779157 |
Aruba | 2020-03-24 | 13 | 0.1128732 | 0.6019903 |
Australia | 2020-03-26 | 12 | 0.1110573 | 0.2279076 |
Austria | 2020-03-17 | 21 | 0.1134549 | 1.3381199 |
Bahrain | 2020-03-14 | 24 | 0.1279573 | 0.4265245 |
Barbados | 2020-03-30 | 8 | 0.1149726 | 0.1951050 |
Belgium | 2020-03-18 | 20 | 0.1077186 | 1.7064252 |
Bosnia And Herzegovina | 2020-03-31 | 7 | 0.1069373 | 0.2008482 |
Canada | 2020-03-27 | 11 | 0.1074014 | 0.4142092 |
Chile | 2020-03-29 | 9 | 0.1007280 | 0.2359113 |
Croatia | 2020-03-26 | 12 | 0.1012032 | 0.2861775 |
Cyprus | 2020-03-25 | 13 | 0.1051247 | 0.3781100 |
Czech Republic | 2020-03-23 | 15 | 0.1089884 | 0.4291244 |
Denmark | 2020-03-13 | 25 | 0.1171196 | 0.7569463 |
Ecuador | 2020-03-29 | 9 | 0.1056196 | 0.2098579 |
Estonia | 2020-03-16 | 22 | 0.1289935 | 0.8275198 |
Finland | 2020-03-23 | 15 | 0.1131566 | 0.3483271 |
France | 2020-03-17 | 21 | 0.1018429 | 1.0821172 |
French Polynesia | 2020-03-27 | 11 | 0.1074164 | 0.1468024 |
Germany | 2020-03-20 | 18 | 0.1692828 | 1.1421740 |
Greece | 2020-03-29 | 9 | 0.1013037 | 0.1656569 |
Guam | 2020-03-23 | 15 | 0.1613925 | 0.6575251 |
Iceland | 2020-03-05 | 32 | 0.1091346 | 4.6072483 |
Iran | 2020-03-12 | 26 | 0.1085463 | 0.7022465 |
Ireland | 2020-03-20 | 18 | 0.1140810 | 1.0468009 |
Israel | 2020-03-22 | 16 | 0.1036461 | 0.9895090 |
Italy | 2020-03-09 | 29 | 0.1218000 | 2.1296093 |
Latvia | 2020-03-25 | 13 | 0.1033175 | 0.2795343 |
Lithuania | 2020-03-27 | 11 | 0.1083480 | 0.2938803 |
Luxembourg | 2020-03-16 | 22 | 0.1250550 | 4.5539515 |
Malta | 2020-03-19 | 19 | 0.1089988 | 0.5313689 |
Mauritius | 2020-03-31 | 7 | 0.1067935 | 0.1893916 |
Montenegro | 2020-03-27 | 11 | 0.1066901 | 0.3407714 |
Netherlands | 2020-03-19 | 18 | 0.1199617 | 0.9725024 |
New Zealand | 2020-03-30 | 8 | 0.1154072 | 0.1904637 |
North Macedonia | 2020-03-28 | 10 | 0.1051137 | 0.2318260 |
Norway | 2020-03-13 | 25 | 0.1154520 | 1.0485499 |
Panama | 2020-03-25 | 13 | 0.1043227 | 0.4681570 |
Portugal | 2020-03-22 | 16 | 0.1251688 | 1.1028549 |
Qatar | 2020-03-14 | 24 | 0.1129917 | 0.5663708 |
Romania | 2020-03-31 | 7 | 0.1008027 | 0.1995398 |
Singapore | 2020-03-27 | 11 | 0.1023373 | 0.2255210 |
Slovenia | 2020-03-16 | 22 | 0.1053566 | 0.4796373 |
Spain | 2020-03-15 | 23 | 0.1230936 | 2.7977754 |
Sweden | 2020-03-16 | 22 | 0.1028259 | 0.6805243 |
Switzerland | 2020-03-14 | 24 | 0.1304798 | 2.4518805 |
Turkey | 2020-03-30 | 8 | 0.1104764 | 0.3244531 |
United Kingdom | 2020-03-25 | 13 | 0.1196058 | 0.7079206 |
United States | 2020-03-23 | 15 | 0.1069880 | 1.0260437 |