Fyrsta bylgja

Vísindamenn frá Háskóla Íslands, Embætti Landlæknis og Landspítala hafa unnið að gerð spálíkans um líklega þróun COVID-19 faraldursins á Íslandi að beiðni Sóttvarnalæknis.

Embætti landlæknis og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra halda úti covid.is. Þar er haldið utan um ýmsar upplýsingar varðandi faraldurinn og er síðan uppfærð daglega. Á síðunni má meðal annars finna tölulegar upplýsingar og gildandi takmarkanir.

Í upphafi fyrstu bylgju faraldursins smitaðist töluverður fjöldi einstaklinga erlendis en fyrsta slíka smitið greindist á Íslandi þann 28. febrúar 2020. Fyrsta innanlandssmit fyrstu bylgju greindist svo 4. mars 2020.